Back to jobs
P

Almenn umsókn / General application

Reykjavík - Skógarhlíð 12Posted 48 months ago
Full-timeonsite

Job Description

Line of Service

Assurance

Industry/Sector

Not Applicable

Specialism

Assurance

Management Level

Associate

Job Description & Summary

Hefur þú áhuga á að starfa hjá PwC?


Hér getur þú skráð almenna umsókn. Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur.

PwC á Íslandi er hluti af stærsta alþjóðlega endurskoðunar- og fjármálaráðgjafafyrirtæki heims. Gæði þjónustu okkar hefur fært fyrirtækinu samkeppnisforskot á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Staða okkar byggir fyrst og fremst á afburða hæfileikum og reynslu starfsmanna PwC. Við leggjum því mikið upp úr því að laða til okkar hæfileikaríkt fólk, efla það í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins.

Hjá PwC á Íslandi starfa yfir 100 manns, flestir með menntun í viðskiptafræði, bókahaldi og/eða löggiltir endurskoðendur. Einnig starfa hjá fyrirtækinu lögfræðingar á sviði skattamála, hagfræði, tölfræði, verkfræði, sálfræði og svo mætti áfram telja. PwC er með starfsemi á sex stöðum á landinu; Reykjavík, Akureyri, Húsavík, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.

Hjá PwC starfar breiður hópur einstaklinga með margvíslega reynslu og menntun.

Fjögur meginsvið PwC eru endurskoðunarsvið, Bókhald og laun, fyrirtækjaráðgjöf og skatta-og lögfræðisvið.

Flestir okkar starfsmenn starfa á endurskoðunarsviði. Þar leitum við að einstaklingum sem eru:

  • löggiltir endurskoðendur
  • viðskiptafræðingar af endurskoðunarsviði
  • einstaklingar sem lokið hafa/eru í M.Acc. námi
  • einstaklingar sem hafa reynslu af endurskoðunarverkefnum, vanir bókhaldi og uppgjörum, skattframtalsgerð og tengdum verkefnum.

Bókhald og laun sinnir fjölbreyttum bókhaldsverkefnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þar ráðum við inn einstaklinga með reynslu af því að færa inn bókhald.

Fyrirtækjaráðgjöfin sækist fyrst og fremst eftir einstaklingum með reynslu og menntun á sviði viðskipta, fjármála, hagfræði og verkfræði.
Skatta- og lögfræðisvið sækist fyrst og fremst eftir lögfræðingum sem hafa sérhæft sig í skattarétti eða sækjast eftir slíkri sérhæfingu.


Við erum ávallt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að slást í okkar góða hóp. Öll kyn eru hvött til að sækja um.

Áhugasamir vinsamlegast sendið okkur umsókn hér að neðan. Athugaðu að þú þarf að stofna aðgang að ráðningarsíðunni okkur til að geta skráð inn umsókn.

Með því að sækja um í gegnum vefsíðuna samþykkir þú að við varðveitum umsókn þína og höfum við samband við þig ef þú kemur til greina í starf hjá okkur. Upplýsingarnar sem fram koma í umsókninni verða aðeins notaðar í tengslum við mats- og ráðningarferli hjá okkur. Farið verður með persónuupplýsingar sem fram koma í umsókninni í samræmi við lög um persónuvernd. Vinsamlegast sendið okkur ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í umsókninni. Sjá Persónuverndarstefnu PwC.

Óskir þú eftir að við eyðum umsókn þinni strax að úrvinnslu lokinni vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum netfangið [email protected].

Education (if blank, degree and/or field of study not specified)

Degrees/Field of Study required:

Degrees/Field of Study preferred:

Certifications (if blank, certifications not specified)

Required Skills

Optional Skills

Desired Languages (If blank, desired languages not specified)

Travel Requirements

Not Specified

Available for Work Visa Sponsorship?

No

Government Clearance Required?

No

Job Posting End Date

See Your Match Score

Sign up and Renata will show you how this job matches your skills and experience.

Get Started Free
Almenn umsókn / General application at Pwc | Renata